|
|
Upplýsingar um Tengir hf. Fjarskiptalausnir á Eyjafjarðarsvæðinu
Starfssvið og markmið
Tilgangur félagsins er fjarskiptarekstur á Eyjafjarðarsvæðinu. Tengir býður allar mögulegar fjarskiptalausnir til bæði fyrirtækja og heimila, svo sem gagnaflutning, Internettengingar, símaþjónustu og sjónvarpsdreifingu.
Akureyrarbær hefur gert samning við Tengi hf um “Opið kerfi til allra” sem er ljósleiðaranet sem nær til allra fyrirtækja, stofnana og heimila í bænum.
Tengir mun sjá um lagningu og þjónustu á ljósleiðaranetinu en ekki vera þjónustusali á netinu.
Um Tengir
Tengir hf var stofnað á Akureyri þann 31. maí 2002 af fjórum hluthöfum, þ.e. Norðurorku, Fjarska ehf, Línu-Neti hf og Íslandssíma hf. Tilgangur félagsins er fjarskiptarekstur á Eyjafjarðarsvæðinu. Tengir býður allar mögulegar fjarskiptalausnir til bæði fyrirtækja og heimila, svo sem gagnaflutning, Internettengingar, símaþjónustu og sjónvarpsdreifingu.
Stærsta verkefni Tengi til þessa er lagning ljósleiðaranets inn á hvert heimili á Akureyri. Stjórnendur Tengis hf hafa skrifað undir samstarfssamning við Akureyrarbæ um að setja á fót upplýsingaveitu um opið gagnvirkt kerfi sem byggt er að mestu á ljósleiðara, þar sem öll heimili, fyrirtæki og stofnanir á Akureyri munu geta tengst við fjarskiptanetið. Verkið er nú þegar hafið og mun Tengir hf aðallega annast uppbyggingu kerfisins og tæknilega grunnþjónustu þess, en ekki reka þjónustusölu til notenda nema til komi að skortur verði á framboði frá þjónustusölum. Nú þegar bjóða þessi fyrirtæki þjónustu sína á fjarskiptakerfi Tengis:
* EJS
* Emax
* Fjarski
* Íslandmiðill
* Míla
* Nova
* Vodafone
* RH Net (Rannsókna og háskólanet Íslands)
* Skýrr
* Síminn
* Skyggnir
* Stefna
* Þekking
Núverandi hluthafar í Tengi hf eru eftirtaldir aðilar:
* Norðurorka hf - 38,25%
* Netkerfi og tölvur ehf - 32,25%
* Gunnar Björn Þórhallsson - 22,50%
* Fjarski ehf 6%
* Tengir hf. 1%
Nánari upplýsingar um þjónustu Tengis veitir Gunnar Björn Þórhallsson, framkvæmdastjóri Tengis, í síma 4 600-407. Skrifstofa fyrirtækissins er til húsa að Rangárvöllum og verkstæði í Fjölninsgötu 6c
Núverandi ljósleiðarakerfi
Ljósleiðarakerfi Tengis hf nær þegar um stærstan hluta Akureyrar og út Eyjafjörð til Dalvikur að vestan og Grenivíkur að austan, einnig nær kerfið inn Eyjafjörðinn að Djúpadal og yfir Vaðlaheiði að Dæli. Kerfið er og hefur verið lagt samhliða öðrum lögnum og er þegar í mikilli notkun hjá fyrirtækjum á Akureyri.
Við það tengjast þegar bankakerfi, heilbrigðisstofnanir, háskólastofnanir, grunnskólar, framhaldsskólar, hugbúnaðar- og hátæknifyrirtæki. Kerfið er tengt við ljósleiðaranet Fjarska og Mílu sem nær um allt land.
Næsta skref: Opið net fyrir alla
Frá upphafi var ákveðið að hafa fjarskiptakerfið opið fyrir allar þjónustuveitur á jafnréttisgrundvelli en Tengir hf mun sjá um að leggja og reka fjarskiptanetið. Allir sem tengjast geta valið um þær þjónustur, sem samstarfsaðilar Tengis hf munu veita á netinu. Þeir aðilar sem taldir voru upp hér að framan halda áfram sínum samskiptum, en nú verður kerfið þétt með því að öll heimili munu geta tengst með einum tengli. Um hann munu heimilin hafa aðgang og val um þjónustu sem margvísleg þjónustufyrirtæki bjóða. Samskipti milli heimilanna og þjónustuaðila verða þeirra á milli.
Akureyrarbær hefur gert samning við Tengi hf um lagningu ljósleiðara sem víðast um bæinn. Samningurinn felur í sér að Akureyrarbær taki ljósleiðaratengingar inn í þær stofnanir sínar sem ekki eru þegar tengdar við gagnaflutningsnetið, enda verði þjónusta og verð samkeppnishæft við gagnaflutningsleiðir annarra fjarskiptafyrirtækja og flutningsgeta miðuð við þörf viðkomandi stofnunar. Með sömu skilyrðum færir Akureyrarbær heimatengingar starfsmanna sinna yfir á ljósleiðaranetið þegar aðstæður til þess skapast í viðkomandi hverfi.
Ljósleiðaranetið er fullkomnasta gagnaflutningsleið sem þekkt er. Um ljósleiðara er hægt að flytja öll stafræn gögn á ljóshraða. Í tæp þrjú ár hefur staðið yfir tilraun hérlendis þar sem ákveðinn fjöldi heimila hefur verið tengdur ljósleiðarakerfi og notað þjónustu frá ýmsum aðilum sem hafa verið þátttakendur í verkefninu. Nú þegar eru fjölmargir aðilar tilbúnir að selja þjónustu sína á ljósleiðaranetinu. Búast má við að flestir sem bjóða margmiðlunarefni og fjarskiptaþjónustu nýti sér ljósleiðaranetið sem dreifileið.
Á ljósleiðarakerfinu eru símafyrirtæki og fjarskiptafyrirtæki bjóða hefðbundna símaþjónustu og netaðgang eins og verið hefur og fljótlega má búast við nýjum þjónustuþáttum á þessu sviði. Má þar nefna ókeypis símtöl innanbæjar og myndsímaþjónustu. Dæmi um aðra þjónustu sem verður á ljósleiðarakerfinu er öryggisgæsla (vöktun á húsi /íbúð/hverfi), leiga á hugbúnaði, stakar beinar útsendingar í sjónvarpi, aðgangur að samskiptum við þjónustustofnanir sveitarfélaga, fjarvinnsla, gagnvirk samskipti, til dæmis við heilbrigðisstofnanir eða lækna, og beintengd heimilistæki.
|