|
Fréttir
11.12.2009 Heimatengingar á Akureyri 2010 Með vorinu er fyrirhugað að hefja lagningu og tengingar í eldri hverfi Akureyrar ef nægur áhugi verður. Byrjað verður að tengja þar sem flestir íbúar hafa staðfest og ákveðið að hefja strax notkun á þjónustu um ljósleiðaranetið. Hægt er að dreifa tengigjaldi í allt að 24. mánaða raðgreiðslur kreditkorta eða með öðrum leiðum kortafyrirtækja.
Vinsamlega merkið í viðeigandi reiti hér að neðan eftir tegund húsnæðis en aðeins ef þú ert ákveðin í að taka samband í notkun, þegar lágmarksfjöldi íbúa í stigagangi, raðhúsi eða götu hefur staðfest pöntun fara viðkomandi eignir í framkvæmdaáætlun.
Á þessari síðu geta íbúar séð hversu margir þeim tengdir hafa pantað samband. Ef ekki næst tiltekið lágmark notenda í viðkomandi húsnæði er alltaf í boði að kaupa sér heimtaug miðað við valmöguleika 1. hér að ofan.
Í fjölbýlishúsum er þegar hægt að hefja lagningu og frágang innanhúslagna frá væntanlegu inntaki í íbúðir áður en inntakslögn verður lögð að og í húsið sem verður þá framkvæmt um leið og aðstæður koma með hækkandi sól.
Ganga þarf frá greiðsluformi upphafsgjalds áður en það er framkvæmt.
Heimasíma, Sjónvarp og Internet þjónustur er þegar hægt að fá um ljósleiðara ásamt ýmsum öðrum sérþjónustum,
kynntu þér málið þannig að ekki komi til að þú getir síðan ekki fengið þær þjónustur sem þú vilt fá afhentar um netið.
Allar þjónustuveitur nema Síminn bjóða nú þegar einstaklingum allar tegundir af þjónustu um ljósleiðara.
Mánaðargjald heimtaugar í notkun er kr. 2.950,- og er greitt mánaðarlega með beingreiðslu eða greiðsluseðli.
Ef einhverjar spurningar eru þá endilega hafið samband með tölvupósti á netfangið heimaljos@tengir.is Lesa meira
21.5.2009 Ljósleiðaratengingar fyrir heimili.
Í sumar er íbúum Naustahverfis boðið að tengjast við ljósleiðaranetið, Vinsamlega hafið samband við þjónustuveitur til að panta tengingu, eða með því að senda tölvupóst á heimaljos@tengir.is Þeir sem eru utan naustahverfis er bent á skráningarsíðu hér til hliðar, þar er hægt að athuga með stöðu á ljósleiðratenginu og skrá viðkomandi heimili.
Þó svo að svarið á síðunni verði að ekki sé boðið uppá að fá tenginu á viðkomandi heimili að svo stöddu flýtir það fyrir möguleikanum þegar áhugasamir íbúar eru búnir að ská sig fyrir tengingu. staðan getur breyst vegna annarra framkvæmda í nágreni heimilis.
Lesa meira
18.2.2009 Núverandi ljósleiðarakerfi Ljósleiðarakerfi Tengis hf nær þegar um stærstan hluta Akureyrar, kerfið er og hefur verið lagt samhliða öðrum lögnum og er þegar í notkun hjá fyrirtækjum á Akureyri.
Við það tengjast þegar bankakerfi, heilbrigðisstofnanir, háskólastofnanir, grunnskólar, framhaldsskólar, hugbúnaðar- og hátæknifyrirtæki. Kerfið er tengt við ljósleiðaranet Fjarska og Mílu sem nær um allt land.
Fleiri fréttir 19.7.2005 - Akureyrarbær semur við Tengi hf. um lagningu ljósleiðarakerfis í bænum
|